Árið 2022 voru skráð símtöl í eitrunarsíma eitrunarmiðstöðvarinnar á Landspítala 2.528 talsins, tæpum 5,5 prósentum færri en árið áður. Fyrirspurnir vegna lyfjaeitrana voru 46,0% og 37,0 % vegna annarra eiturefna. Almennar fyrirspurnir voru 11,0 % og óskráðar 6%.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu eitrunarmiðstöðvarinnar.
Ársskýrsla eitrunarmiðstöðvarinnar á Landspítala 2022