„Tímarnir breytast og mennirnir með“ er yfirskrift ráðstefnu Dags öldrunar 2021 sem verður föstudaginn 19. nóvember á Hótel Natura og Zoom.
Með yfirskrift ráðstefnunnar er vísað til mikilvægis þess að vera með þjónustu á hreyfingu og sníða og þróa hana að þörfum þjónustuþeganna og samfélagsings. Fluttur verður fjöldri erinda sem tengjast málefninu og sýnd veggspjöld.
Ráðstefna Dags öldrunar er þverfagleg og á vegum Fagdeildar öldrunarhjúkrunarfræðinga, Fagdeildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga, Fagráðs öldrunarhjúkrunar á Landspítala og Rannsóknarstofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum (RHLÖ).