Lungnadeild
Meginviðfangsefni er greining, meðferð og hjúkrun sjúklinga með bráða og langvinna lungnasjúkdóma
Guðrún Árný Guðmundsdóttir
gudrgudm@landspitali.isSif Hansdóttir
sifhan@landspitali.isHafðu samband
Hér erum við
Fossvogur- Aðalinngangur Krókur- A álma 6. hæð
Hagnýtar upplýsingar
Meginviðfangsefni
- Bráð lungnavandamál
- Langvinnir lungnasjúkdómar
- Önnur vandamál í öndunarfærum
Á deildinni er greining, meðferð og hjúkrun sjúklinga með bráða og langvinna lungnasjúkdóma. Flestir sjúklingar sem leggjast inn á deildina koma frá bráðadeild, bráðalyflækningadeild eða gjörgæsludeild.
Á deildinni eru tvær sérútbúnar hágæslustofur ætlaðar mikið veikum sjúklingum sem þurfa nákvæmt eftirlit og/eða einangrun
Legudeild með 20 rúmum.
Starfsmenn eru um 60 talsins.
Meðaldvalartími er 8 dagar.
Starfsfólk deildarinnar leggur áherslu á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra og að veita greinargóðar upplýsingar um sjúkdómsástand, rannsóknir, meðferð, hjúkrun og batahorfur.
- Deildin er opin allan sólarhringinn allan ársins hring
- Sjúklingar leggjast inn hvenær sem er sólarhringsins og útskrifað er alla daga
- Sjúklingum er sinnt allan sólarhringinn, allt eftir þörfum hvers og eins en mest er um að vera á morgnana. Þá er veitt aðstoð við persónulega umhirðu, genginn stofugangur og útskriftir undirbúnar
- Vaktaskipti hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða eru kl. 08:00, 15:30 og 23:00
- Stofugangur er kl. 09:00-11:00
- Heimsóknartímar eru eftir samkomulagi en yfirleitt ekki fyrir hádegi eða eftir kl. 20:00
- Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar gegna mikilvægu hlutverki í meðferð, fræðslu og ráðleggingum til sjúklinga
- Félagsráðgjafar veita ráðgjöf varðandi réttindamál, búsetuúrræði og færni og heilsumat
- Sálfræðingar eru kallaðir til eftir þörfum fyrir sjúklinga og aðstandendur
- Næringarráðgjafar veita fræðslu og ráðgjöf um mataræði
- Prestar og djáknar sinna sálgæslu sjúklinga, aðstandenda og starfsfólks
- Allir sjúklingar fá mat á deildinni nema þeir séu tímabundið fastandi vegna rannsókna, aðgerða eða sjúkdómsástands
- Morgunverður er borinn fram um kl. 8:30, hádegisverður um kl. 12:00, miðdegiskaffi um 14:30, kvöldmatur kl. 17:30 og kvöldkaffi um 19:30
- Á ganginum er vatnskælivél
- Kæliskápur fyrir sjúklinga ásamt borði með blómavösum og merkimiðum
- Farsíma má nota en vinsamlega hafið símann stilltan á hljólausa stillingu og takið tillit til stofufélaga þegar talað er í síma.
- Vinsamlega virðið einkalíf annarra sjúklinga og ræðið ekki það sem þið kunnið að verða áskynja um heilsufar þeirra og hagi
- Sjúklingar geta fengið aðgang að Netinu gegnum gestanet spítalans
- Afþreyingartónlist er í útvarpinu á rás 3. Sjónvörp eru á öllum sjúkrastofum
- Kvennadeild Rauða kross Íslands rekur verslanir í anddyrum Landspítala
- Sjúklingar eru beðnir um að láta vita ef þeir hyggjast fara í verslunina eða af deildinni í öðrum erindagjörðum
- Hraðbanki er í anddyri og sjálfsalar eru á nokkrum stöðum í húsinu
- Guðsþjónustur eru flesta sunnudaga kl.10:00 á Landspítala Fossvogi, stigapalli á 4. hæð. Þær eru auglýstar sérstaklega
Sjúkrahúsdvöl á aldrei að vera lengri en nauðsyn krefur og sjúklingar eiga að jafnaði að fá upplýsingar um útskrift innan sólarhrings frá innlögn.
Við útskrift á sjúklingur rétt á að fá:
- Upplýsingar um ástæður innlagnar, meðferð og niðurstöður rannsókna.
- Upplýsingar um áframhaldandi eftirlit ef slíkt er fyrirhugað og hvert á að leita eftir niðurstöðum sem liggja ekki fyrir við útskrift.
- Upplýsingar um hættumerki sem þarf að vera vakandi fyrir eftir heimkomu og hvert á að leita ef vandamál koma upp eftir útskrift.
- Yfirlit yfir þau lyf sem á að taka, skammtastærðir og tímalengd ef við á. Lyfseðlar eru sendir rafrænt í lyfjagátt og er hægt að leysa út í hvaða apóteki sem er.
Allt um útskrift, endurnýjun lyfseðla og útskriftarteymi
Landspítali er háskólasjúkrahús og þangað kemur ár hvert fjöldi nema í hinum ýmsu starfsgreinum til kennslu og þjálfunar.
Nemendur fylgjast með og taka þátt í daglegri meðferð sjúklinga. Þeir eru alltaf á ábyrgð undir handleiðslu leiðbeinenda sinna.
Þá er unnið umfangsmikið vísindastarf á sjúkrahúsinu.
Sjúklingar eru stundum beðnir um að taka þátt í slíkum verkefnum og eiga þeir þá rétt á ítarlegri upplýsingagjöf um tilgang og framkvæmd verkefnis.
Hverjum og einum er heimilt að neita slíkri þátttöku eða hætta henni hvenær sem er án skýring