Göngudeild húð- og kynsjúkdóma
Emma B. Magnúsdóttir
Elísabet Reykdal Jóhannesdóttir
Hafðu samband
Hér erum við
1. hæð A álma Fossvogi. Aðkoma er austan við Landspítala Fossvogi í lágbyggðu húsi í suðausturhorni lóðarinnar. Þegar komið er inn á lóð spítalans þar er ekið framhjá bráðamóttökunni, niður bílaplanið og beygt til hægri hjá Strandmöllen súrefniskútnum. Þar er inngangurinn, fyrsta hurðin á suðurhlið hússins (ekki hurðin á gaflinum).
- Sími: 543 6350
- Tilvísun þarf að liggja fyrir til að hægt sé að bóka tíma vegna húðsjúkdóma. Síminn er opinn kl. 11.00 - 12.00 og 13.00 - 14.00
Fræðsluefni fyrir húðsjúkdóma
Bjúgur á fótum - þrýstingsmeðferð með teygjubindum
Fræðsluefni fyrir kynsjúkdóma er að finna undir sér kafla neðar á síðunni um Kynsjúkdóma.
Tímapantanir hjá kynsjúkdómadeild eru í gegnum Landspítala-app
Þeir sem hvorki eiga rafræn skilríki né auðkennisapp bóka tíma hjá ritara:
- Sími: 543 6050
- Panta þarf tíma: kl. 11.00 - 12.00 og 13.00 - 14.00
Blóðrannsókn í Fossvogi:
Örvarnar sýna leiðina frá göngudeild húð- og kynsjúkdóma í blóðrannsókn. Gengið er inn um Krókinn, aðalinngang Landspítala í Fossvogi. Þegar þangað er komiðer farið beint áfram að rannsóknarkjarna (E1 er til vinstri).
Þegar komið er inn í E-álmuna er beygt strax til hægri að afgreiðslu blóðrannsókna (rannsóknakjarni).
Deildarstjóri:
Emma B. Magnúsdóttir
Göngudeild húð- og kynsjúkdóma
emmabm@landspitali.is
Yfirlæknir:
Elísabet Reykdal Jóhannesdóttir
slbeta@landspitali.is
Leiðbeiningar um tímapöntun, komu á kynsjúkdómadeild og fleira:
- Beiðni um kynsjúkdómarannsóknir er í gegnum Landspítlaapp. Appið er aðgengilegt á Apple Store og Google Play undir nafninu „Landspítali“. Upplýsingar um Landpsítala appið
- Þar er sóttur spurningalisti: Leiðbeiningar hvernig á að sækja spurningalistann í appinu
- Það þarf rafræn skilríki eða auðkennisappið til að opna Landspítlaappið.
- Það er bara hægt að sækja Landspítlaappið í farsíma og spjaldtölvu (ekki borðtölvu).
- Biðtími eftir rannsókn er oftast 1-5 virkir dagar eftir að svör við spurningalista hafa borist til deildar.
- Sms-skilaboð með strikamerki berst í skráðan síma þegar sýnatökusett er tilbúið í snjall- /póstboxi á deildinni (gildir aðeins fyrir þá sem svara spurningalista í Landspítlaappi). Strikamerkið gildir í 24 klst. á opnunartíma deildar (strikamerki sem berst á föstudegi og fyrir frídag, gildir bara þann dag).
- Sýnatökusett má nálgast í snjall- /póstboxi á biðstofu göngudeildar húð- og kynsjúkdóma, A1, Fossvogi sem er opin virka daga kl. 8:15 til 15:00.
- Þeir sem ekki eiga rafræn skilríki hringja í ritara (s. 5436050) og fá lánaða spjaldtölvu á deildinni til að svara spurningalistanum.
________________________________________
Allir eru bókaðir í almenna kynsjúkdómarannsókn án viðtals við hjúkrunarfræðing/lækni.
Í almennri kynsjúkdómarannsókn er skimað fyrir klamydíu og lekanda.
Einstaklingar með typpi skila þvagsýni og einstaklingar með leggöng skila stroksýni frá leggöngum.
Í spurningalistanum er einnig hægt að óska eftir blóðprufum og símaráðgjöf hjúkrunarfræðings.
Til að fá áreiðanlegar niðurstöður úr klamydíu- og lekandarannsóknum þurfa að líða minnst 10 dagar frá mögulegu smiti þar til sýni er tekið.
Niðurstöður rannsókna má nálgast í Landspítlaappi eftir 1-3 virka daga.
- Hægt er að óska eftir símtali við hjúkrunarfræðing í spurningalistanum.
- Hjúkrunarfræðingur hringir samdægurs eða næsta virka dag.
ATH: Það er ekki hægt að bóka símtal við lækni.
Einstaklingur með typpi skilar þvagsýni.
Leiðbeiningar um þvagsýnatöku á kynsjúkdómadeild
Einstaklingur með typpi sem á kynlífsfélaga með typpi skilar auk þvagsýnis, sýni frá hálsi og/eða endaþarmi.
- Leiðbeiningar um sýnatöku frá þvagi
- Leiðbeiningar um sýnatöku frá hálsi á kynsjúkdómadeild
- Leiðbeiningar um sýnatöku frá endaþarmi á kynsjúkdómadeild
Einstaklingur með leggöng skilar stroksýni frá leggöngum.
Einstaklingur sem á kynlífsfélaga sem hefur greinst með lekanda skilar sýni frá hálsi auk sýnis frá kynfæri.
Blóðrannsóknir eru nauðsynlegar þegar:
- Smokkur er ekki notaður eða kynlífsfélagar eru margir.
- Saga um sprautufíkn en þá er einnig æskilegt að óska eftir blóðprufu fyrir lifrarbólgu.
- Athuga að ef minna en þrír mánuðir eru frá mögulegu smiti ætti að endurtaka blóðrannsóknir.
- Nauðsynlegt er að útiloka klamydíu- og lekandasmit með sýnatöku.
Sár á kynfærum eða endaþarmi
- Ef einkenni eru ný og/eða mikil (verkir, sviði og sársauki við þvaglát) og þörf þykir á skoðun er í spurningalistanum bókuð símaráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi. Hjúkrunarfræðingur hringir samdægurs eða næsta virka dag.
- Nauðsynlegt er að útiloka klamydíu- og lekandasmit með sýnatöku og ef við á blóðrannsókn fyrir HIV og sárasótt.
Vörtur á kynfærum eða við endaþarm
- Ef grunur er um vörtur á kynfærum eða við endaþarm bókar ritari tíma í læknisskoðun á göngudeild húð- og kynsjúkdóma um leið og sýni fyrir klamydíu- og lekanda er skilað.
- Snjall- /póstbox er staðsett á biðstofu göngudeildar húð- og kynsjúkdóma, A1, Fossvogi. Deildin er opin virka daga kl. 8:15 til 15:00. (Móttökustandur í anddyri virkar ekki fyrir kynsjúkdómadeild).
- Til að opna snjall- /póstbox: Skannaðu strikamerki í símanum þínum eða sláðu inn númerið (fylgir strikamerkinu) til að opna hólfið.
- Gular merkingarnar á gólfi biðstofu vísa leið að snyrtingu.
- Einstaklingur tekur sýnin sjálfur á salerni.
- Leiðbeiningar um sýnatöku eru á snyrtingu (linkur í leiðbeiningarnar hér).
- Öll sýnaglös eru merkt með nafni og kennitölu, auk þess eru stroksýni merkt hvaðan sýnið er tekið (endaþarmur (e), háls (h), leggöng (s)).
- Þegar sýni hefur verið tekið er því skilað í bala á snyrtingu.
- Mikilvægt er að taka með heim rakningablað sem fylgir sýninu, þar eru leiðbeiningar um niðurstöður, rakningu og fleira. Ef kynsjúkdómur greinist þarf að fylla blaðið vel út og senda í tölvupósti til kyn@landspitali.is, eða með „Signet Transfer“. Hér má nálgast Rakningsblaðið
- Niðurstöður má nálgast í Landspítlaappi (linkur í QR-kóða fyrir Landspítalaapp).
- Appið er aðgengilegt á Apple Store og Google Play undir nafninu „Landspítali“.
- Innskráning í appið er með rafrænum skilríkjum.
- Linkur í leiðbeiningar hvernig opna/skoða má niðurstöður.
- Þeir sem ekki eiga rafræn skilríki geta óskað eftir að fá niðurstöður afhentar á deildinni. Send er beiðni í tölvupóst til kyn@landspitali.is. Hægt er að sækja niðurstöður gegn framvísun viðurkenndra skilríkja, í afgreiðslu göngudeildar húð- og kynsjúkdóma á opnunartíma, næsta virka dag eftir að beiðni berst.
Niðurstöðum er hvorki svarað í síma né tölvupósti.
Samkvæmt sóttvarnalögum ber heilbrigðisstarfsmanni sem greinir og meðhöndlar kynsjúkdóm (s.s. klamydíu, lekanda, sárasótt, HIV, lifrarbólgu B og lifrarbólgu C) að gera smitrakningu til að hefta útbreiðslu smits eins og kostur er. Smitrakning er gerð eitt ár aftur í tímann eða frá þeim tíma sem viðkomandi fór síðast í tékk. Upplýsingar úr smitrakningu eru ekki skráðar í sjúkraskrá og er eytt að lokinni rakningu.
- Rakningablað kynsjúkdómadeildar
- Örugg gagnasending til göngudeildar húð- og kynsjúkdóma
- Sóttvarnarreglur: Reglugerð um sóttvarnaráðstafanir
Meðferð kynsjúkdóma:
- Þegar rakningablaðið hefur borist til göngudeildar húð- og kynsjúkdóma sendir læknir deildarinnar leiðbeiningar heilsuveru varðandi meðferð, einkenni, ofnæmi, aðra lyfjanotkun og fleira.
- Lyf er því næst sent í apótek einstaklingi að kostnaðarlausu.
- Best er að meðhöndla báða einstaklinga í föstu sambandi á sama tíma að undangenginni sýnatöku og smitrakningu.
- Ekki má stunda kynlíf á meðan meðferð fer fram og í 3 daga eftir að henni lýkur, samtals 10 daga þar sem einstaklingur getur verið smitandi í þann tíma.
- Klamydía fræðslubæklingur
- Þeir sem greinast með lekanda eru boðaðir í viðtal og meðferð á göngudeild húð- og kynsjúkdóma.
- Þeir afhenda lækni rakningablað.
- Allir sem fá meðferð vegna lekanda fá tvær tegundir sýklalyfja, bæði töflur og sprautu.
- Þremur vikum eftir meðferð við lekanda þarf að skila nýju sýni (þvagsýni eða stroki).
- Ekki má stunda kynlíf frá því grunur vaknar um lekandasmit og þar til niðurstöður úr seinni sýnatöku liggja fyrir.
- Þeir sem greinast með sárasótt eru boðaðir í viðtal og meðferð á göngudeild húð- og kynsjúkdóma.
- Þeir afhenda lækni rakningablað.
- Algengasta meðferð við sárasótt er í sprautuformi í 1 – 3 skipti.
- Meðferð við sárasótt er fylgt eftir með þremur blóðprufum 3, 6 og 12 mánuðum eftir meðferð.
Fyrsta koma
Fyrsta koma vegna fyrirhugaðrar PrEP meðferðar er hjá hjúkrunarfræðingi á göngudeild smitsjúkdóma, A3 í Fossvogi. Gert áhættumat fyrir HIV, gefin fræðsla og skimað fyrir kynsjúkdómum.
Hjúkrunarfræðingur bókar í kjölfarið tíma hjá smitsjúkdómalækni á A3.
Tímapöntun er í síma 543-6040.
Önnur koma
Önnur koma er hjá smitsjúkdómalækni á göngudeild smitsjúkdóma, A3 í Fossvogi.
Smitsjúkdómalæknir endurnýjar lyfseðla fyrir PrEP-meðferð.
Eftirfylgni
Endurkoma er á 12 vikna fresti á göngudeild húð- og kynsjúkdóma, A1 í Fossvogi.
Tímapöntun er í síma 543-6050.
- Bókað er í „PrEP – tékk“.
- Leiðbeiningar um sýnatöku eru á snyrtingu.
- Sýnum er skilað í bláa skápinn á snyrtingunni.
- Blóðprufur eru teknar á E1 í Fossvogi. Sjá kort (linkur í kort).
- Blóðrannsóknir sem algengast er að gera eru HIV, sárasótt, lifrabólga b, lifrabólga c og kreatinin.
- Sms-skilaboð með strikamerki berst í skráðan síma þegar búið er að senda blóðprufubeiðni og sýnatökusett er tilbúið í snjall- /póstboxi á deildinni. Strikamerkið gildir í 24 klst. á opnunartíma deildar (strikamerki sem berst á föstudegi gildir bara þann dag).
- Skoðið vel um komu á kynsjúkómadeild í kafla hér fyrir ofan (Komur á kynsjúkdómadeild)
Við hvetjum alla til að nota smokk og panta tíma í tékk ef grunur er um kynsjúkdómasmit (ath. tímafaktor frá mögulegu smiti þar til smit greinist).
Klamydía
Klamydía (fræðsluefni Landspítala)
Gagnlegir linkar
https://attavitinn.is/sambond-og-kynlif/kynlif/
https://www.iwantprepnow.co.uk/
https://www.rfsu.se/sex-och-relationer/for-dig-som-undrar/konssjukdomar-och-hiv/
Bólusetningar
Lifrabólga C; EKKI TIL BÓLUSETNING
Gardasil; https://www.ema.europa.eu/en/documents/product-information/gardasil-9-epar-product-information_is.pdf (úr Sérlyfjaskrá)
Cervarix; https://www.ema.europa.eu/en/documents/product-information/cervarix-epar-product-information_is.pdf (úr Sérlyfjaskrá)