Miðstöð sjúklingafræðslu
Vantar fræðsluefni fyrir sjúklinga á þinni einingu?
Fylgt er ákveðnu ferli við gerð fræðsluefnis fyrir sjúklinga og að standendur.Sjá: Gerð fræðsluefnis - ferli .
- Mikilvægt er kynna sér gátlista um gerð fræðsluefnis fyrir sjúklinga og aðstandendur áður en hafist er handa við gerð eða ritun þess.
Sjá Gerð fræðsluefnis - ritun. Mælt er með að hafa samráð við ritstjórn sjúklingafræðslu áður en vinnan er hafin. Einfaldast er að senda tölvupóst: sjuklingafraedsla@landspitali.is - Allt efni er sent til ritstjórnar sem sér um yfirlestur og sendir til uppsetningar til grafísks hönnuðar Landspítala eins og við á
- Efni má miðla á margvíslegan máta svo sem með skriflegu fræðsluefni eða stuttum myndböndum. Ritstjórn gefur nánari upplýsingar og ráðgjöf um miðlun efnis.
Fræðsluefni er vistað í gæðahandbók og er birt á ytri vef Landspítala eftir útgáfu þess. Endurskoða þarf efnið á 12-36 mánaða fresti.
Hægt er að senda sjúklingum fræðsluefni rafrænt í Heilsuveru úr Sögukerfi eða Heilsugátt eða í tölvupósti.
Útgefið fræðsluefni
Á vef Landspítala er að finna útgefið fræðsluefni sem Landspítali hefur gefið út.
Nýlega útgefið fræðsluefni
Fræðsluefni er stundum gefið út á myndböndum hér neðan er dæmi um nýlegt efni sem hefur verið gefið út:
Allur tilfallandi kostnaður s.s. vegna fjölritunar, prentunar, ljósmynda, teikninga, þýðinga eða yfirlesturs utan Miðstöðvar sjúklingafræðslu er greiddur af þeirri starfseiningu sem óskar eftir verkefninu.
Samþykki stjórnanda viðkomandi starfseiningar fyrir útgjöldum þarf að liggja fyrir áður en hafist er handa.
Hægt er að panta fjölritun á fræðsluefni með því að senda tölvupóst til fjölritun@landspitali.is
Tilgreina þarf fjölda eintaka sem beðið er um og stærð umbrots.
Vilt þú læra um sjúklingafræðslu?
Þetta er í vinnslu
Öll námskeið um sjúklingafræðslu verða birt hér
Námskeiðin eru í vinnslu.
Útgefið efni
Fræðsla fyrir erlenda sjúklinga
Ef þýða þarf fræðsluefni yfir á erlent tungumál er það gert af viðurkenndum þýðanda og lesið yfir af heilbrigðisstarfsmanni með viðkomandi tungumál sem fyrsta mál eða öfugt.
- Fræðsluefni sem þýða á yfir á erlent tungumál þarf áður að hafa verið gefið út á íslensku í gæðahandbók Landspítala.
- Kostnaður af þýðingu er greiddur af viðkomandi sviði/starfseiningu með samþykki stjórnanda.
- Fræðsluefni á erlendum tungumálum er vistað í gæðahandbók og uppfært um leið og íslenska efnið er uppfært.
Miðstöð um sjúklingafræðslu hefur milligöngu um að útvega þýðanda.
Meginforsenda góðrar heilbrigðisþjónustu eru góð samskipti. Tungumálaerfiðleikar eru stærsta hindrunin í samskiptum við erlenda skjólstæðinga. Þegar samskipti eru takmörkuð er þjónustan verri því óskýr samskipti geta valdið misskilningi og ógna þar með öryggi sjúklinga.
Með auknum fjölda erlendra starfsmanna sem sinna sjúklingafræðslu er mikilvægt að til sé efni á fleiri tungumálum en íslensku til að tryggja að öll skilaboð komist til skila.
Góð og trygg samskipti fækka endurkomum á sjúkrahús, stytta sjúkrahúsdvöl, fækka óþarfa kostnaðarsömum rannsóknum og koma jafnvel í veg fyrir ranga sjúkdómsgreiningu. Meðferðarheldni sjúklinga eykst, þjónustan verður heildrænni og skjólstæðingar ánægðari.
Mikilvæg atriði sem þarf að hafa í huga við sjúklingafræðslu erlendra skjólstæðinga má finna hér: Menningarnæm fræðsla.
Care-to-translate (C2T) Clinic smáforritið (appið) er samskiptatól sem notað er í samskiptum við erlenda sjúklinga sem geta hvorki tjáð sig á ensku né íslensku. Þetta þýðingartól inniheldur fyrirfram skilgreinda frasa, setningar, orð og fleira á rúmlega 40 tungumálum og er vottað fyrir heilbrigðisstofnanir.
Lausnin er aðgengileg hvenær sem er þegar hún hefur verið sett upp í t.d. spjaldtölvur á Landspítala. Hún er viðbót við þær lausnir sem fyrir eru, t.d. túlkaþjónustu og Language line og er nú (árið 2022-2023) í prófun á Landspítala. Verkefnið er skref í þróun sjúklingafræðslu og vandraðra samskipta í heilbrigðiskerfinu. Margar deildir taka þátt í prófun á C2T.
Vinsamlegast hafið samband við Brynju Ingadóttur, sérfræðing í hjúkrun (brynjain@landspitali.is) á Miðstöð sjúklingafræðslu ef þið hafið áhuga á að kynna ykkur lausnina betur.
Um okkur
Miðstöð um sjúklingafræðslu á Landspítala var stofnuð 2019 og tilheyrir skrifstofu framkvæmdastjóra hjúkrunar og lækninga. Dr. Brynja Ingadóttir, sérfræðingur í hjúkrun veitir miðstöðinni forstöðu (brynjain@landspitali.is).
Hlutverk miðstöðvar um sjúklingafræðslu
- Miðstöðin er leiðandi í þróun sjúklingafræðslu innan Landspítala þ.m.t. gerð ferilgreininga og ferla um gerð fræðsluefnis, þjálfun starfsfólks og sjúklinga, innleiðingu nýrra kennsluaðferða og miðla og rannsókna á áhrifum þeirra. Hún aðstoðar starfsfólk við verkefni er tengjast umbótum í sjúklingafræðslu. Hún er í samstarfi við viðeigandi aðila um innleiðingu fullnægjandi skráningar um fræðslu.
- Miðstöðin ber ábyrgð á frumútgáfu og endurskoðun fræðsluefnis á vegum Landspítala, í nánu samstarfi við klíníska starfsmenn. Þetta á jafnt við um fræðsluefni á vefsíðu, prentað efni og myndefni.
- Miðstöðin er fulltrúi Landspítala út á við í samstarfi um fræðslu til sjúklinga, aðstandenda og almennings. Hún hefur frumkvæði að samræmingu og samstarfi við ytri aðila til að tryggja aðgengi sjúklinga, aðstandenda og almennings að fræðslu.
- Miðstöðin ber ábyrgð á að fylgjast með hvað er efst á baugi í sjúklingafræðslu, hérlendis sem og erlendis og miðlar því til starfsmanna.
- Miðstöðin er í samstarfi við háskóla um þróun starfseminnar, s.s. rannsóknarverkefni og menntun heilbrigðisstétta um sjúklingafræðslu.
Innan miðstöðvarinnar starfar ritstjórn sjúklingafræðsluefnis og stýrinefnd til ráðgjafar. Sjá hér neðar í +lista "Ritstjórn og ritstjórnarstefna."
Ritstjórn sjúklingafræðsluefnis starfar innan miðstöðvar sjúklingafræðslu. Ritstjórnin hefur það verkefni að sjá um útgáfu sjúklingafræðsluefnis á vegum Landspítala með því að:
- Aðstoða starfsfólk eininga við gerð fræðsluefnis og útgáfu þess og sjá um endurskoðun á útgefnu efni.
- Tryggja að útgefið efni uppfylli gæðakröfur, sé ritað með heilsulæsi og jafnrétti í huga og með þátttöku notenda.
Ritstjórn starfar samkvæmt ritstjórnarstefnu og hana skipa:
Katrín Blöndal, sérfræðingur í hjúkrun sem veitir ritstjórn forstöðu (skrifstofu framkvæmdastjóra hjúkrunar)
Kristín Halla Marínósdóttir, lyflækninga- og bráðasviði
Margrét Sjöfn Torp, verkefnastofu
Sigríður Heimisdóttir, lyflækninga- og bráðasviði
Þorgerður Ragnarsdóttir, skrifstofu framkvæmdastjóra hjúkrunar
Kristín Skúladóttir, verkefnastofu
Netfang ritstjórnar: sjuklingafraedsla@landspitali.is
Stefnan var endurskoðuð 2019 sjá: Þátttaka sjúklinga og aðstandenda í meðferð - sjúklingafræðsla
Hafðu samband
Netfang: sjuklingafraedsla@landspitali.is