Gerviliðir í hné
Heilgerviliður í hné
Höfundarréttur myndskeiðs:
Medical Animation Copyright © 2017 Nucleus Medical Media. All rights reserved
Um gervilið í hné
Við liðskipti á hné eru íhlutir nær alltaf festir við bein með sementi.Í heilliðskiptum er allur liðflötur fjærhluta lærleggs og nærhluti sköflungs fjarlægðir og sniðnir að þeim íhlutum sem þar á að setja.
Aðlægir vefir eru hreinsaðir burtu ef skaddaðir eða skemmdir en passað að öll starfhæf liðbönd verði ekki fyrir skaða. Hægt er að setja plast aftantil á hnéskel, en það er til undantekninga að það sé gert og iðulega eru slitfletir einungis snyrtir í aðgerð. Ef ákveðið er að setja hálfgervilið í hné er það oftast vegna þess að brjóskskemmdirnar í hnénu er staðbundar á innanverðunni. Eru þá aðeins sniðnir til innanverði liðflötur lærleggsenda sem og nærhluta sköflungs.
Kolbrún Kristiansen, sérfræðingur í hjúkrun:
Hjúkrun - Fræðsla fyrir gerviliðsaðgerð á hné (mp4)
Jenný Kaaber næringarfræðingur:
Algengar spurningar um gerviliði og liðskiptaaðgerðir
Aðgerðin felst í meginatriðum í því að teknir eru burt náttúrulegir liðfletir sjúklingsins og settir í staðinn íhlutir úr ólífrænu efni. Flestir gerviliðir samanstanda af íhlutum úr cobalt-chrome málmblöndu og einnig er notast við slitsterkt polyethylen plast. Hægt er að velja að nota svokallað beinsement eða ekki til að festa íhluti gerviliðar við bein. Sement þetta er fjölliða (polymethyl methylacrylate) sem inniheldur einnig sýklalyf.
Já. Rannsóknir hafa sýnt að tog vegna segulkrafta segulómtækis á þá málma sem notaðir eru í íhluti við liðskiptaaðgerðir eru innan við fjórðungur af togi þyngdaraflsins.Þó þarf að veita geislafræðingum upplýsingar um ígræði og tegund íhluta þegar slíkar rannsóknir eru fyrirhugaðar.
Þegar settur er gerviliður í mjöðm lengist stundum ganglimur óverulega. Þetta er vegna þess að mjöðm einstaklings getur reynst óstöðug í aðgerð og þá þarf að auka lengd íhluta til að viðhalda stöðugleika í liðnum og forða liðhlaupi eftir aðgerð.
Aðrir fylgikvillar geta komið upp en eru fátíðir.