Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á skilunardeild
Við leitum eftir kraftmiklum hjúkrunarfræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar skilunardeildar á Hringbraut. Viðkomandi þarf að búa yfir afburða samskiptahæfni og hæfni til að takast á við breytingar. Starfið felur í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er í góðu samstarfi við þverfagleg teymi nýrnalækninga og fjölmarga aðra fagmenn spítalans.
Skilunardeildin er spennandi og faglega krefjandi vinnustaður þar sem unnið er náið með sjúklingum í tæknilegu umhverfi. Á deildinni fer fram blóðskilun en einnig kennsla, þjálfun og eftirlit sjúklinga í kviðskilun, en þessar meðferðir eru lífsnauðsynlegar fyrir einstaklinga með nýrnabilun á lokastigi. Einnig eru blóðvökvaskipti framkvæmd á deildinni. Um fullt starf er að ræða sem er laust frá 1. júlí 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Á skilunardeild starfa um 30 manns í þverfaglegu teymi og góðu starfsumhverfi við góðan starfsanda. Opnunartími deildarinnar er frá 8:00 til 20:00 virka daga og 8:00 til 15:00 um helgar. Unnið er á tvískiptum vöktum og bakvaktir eru utan opnunartíma. Skjólstæðingar deildarinnar eru um 100 talsins og á öllum aldri. Starf á skilunardeild felur í sér mjög fjölbreytta hjúkrun og fær nýtt starfsfólk ítarlega þjálfun.
Vinnuvika starfsfólks í vaktavinnu er nú 36 stundir. Við bjóðum upp á góða vinnuaðstöðu og gott starfsumhverfi með fjölskylduvænum vinnutíma og fyrsta flokks mötuneyti.
- Vinnur í samráði við hjúkrunardeildarstjóra að skipulagningu á starfsemi deildar og mótun liðsheildar
- Ber ábyrgð á verkefnum sem hjúkrunardeildarstjóri felur honum
- Ber ábyrgð á framkvæmd hjúkrunar, rekstri og mönnun deildarinnar í fjarveru deildarstjóra
- Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í hjúkrun
- Leiðir umbreytingarverkefni og teymisvinnu deildarinnar
- Framkvæmd á blóðskilunarmeðferð og ábyrgð á alhliða eftirliti og eftirfylgni með sjúklingi í skilunarmeðferð, þar með talið leiðsögn og kennslu í viðeigandi viðfangsefnum
- Alhliða hjúkrun fyrir sjúklinga með langvinna eða bráða nýrnabilun og fjölskyldur þeirra
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Leiðtogahæfni og áhugi á stjórnun
- Hæfileiki til þverfaglegrar teymisvinnu og til að vinna sjálfstætt
- Afburða hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Sveigjanleiki og góð aðlögunarhæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, öguð og skipulögð vinnubrögð
- Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og færni í teymisvinnu
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á faglegu og stöðluðu matsferli. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, aðstoðardeildarstjóri hjúkrun, hjúkrun, stjórnun