Leit
Loka

Erindi vegna heilbrigðisþjónustu

Landspítali setur sjúklinginn í öndvegi og leggur áherslu á að þjónustan sé örugg, góð og veitt af umhyggju.
Endurgjöf, bæði jákvæð og neikvæð, er afar mikilvæg.

Hér er hægt er að senda inn athugasemdir vegna heilbrigðisþjónustu eða framkomu starfsfólks, hrós, ábendingar eða tillögur vegna þjónustu Landspítala og senda inn erindi til talskonu sjúklinga.

Embætti landlæknis tekur við kvörtunum vegna meðferðar (meintra mistaka eða vanrækslu).

Ef það er óljóst hvert þú vilt senda erindið þitt er velkomið að hafa samband við talskonu sjúklinga til að fá aðstoð með því að senda tölvupóst á talskona@landspitali.is eða með því að nota slóðina hér fyrir neðan.

Sýna allt
Embætti landlæknis tekur við kvörtunum vegna meðferðar (meintra mistaka eða vanrækslu) í samræmi við ákvæði laga um landlækni og lýðheilsu.

Í samræmi við 28. gr. laga nr. 74/1997 um réttindi sjúklinga skal athugasemdum sjúklings vegna þjónustu eða framkomu heilbrigðisstarfsfólks á heilbrigðisstofnun, starfsstofu heilbrigðisstarfsmanna eða annars staðar þar sem heilbrigðisþjónusta er veitt, beint til yfirstjórnar viðkomandi heilbrigðisstofnunar eða þeirra sem bera ábyrgð á þjónustunni.

Með því að fylla út þetta eyðublað er hægt að senda inn athugasemdir vegna heilbrigðisþjónustu, svo sem framkomu starfsfólks, samskipta, upplýsingamiðlunar, aðstöðu og aðbúnaðar. Til þess að Landspítali geti brugðist við erindi þínu verður þú að gefa upp kennitölu og netfang. Öll samskipti eru vistuð í gagnagrunni Landspítala. Sjá nánar um meðferð persónuverndarupplýsinga hér: Persónuverndarstefna Landspítala.

Mikilvægt er að tilefni athugasemdar sé lýst með skýrum og ítarlegum hætti og þær vel aðgreindar séu þær fleiri en ein. Rökstyðja þarf í hverju athugasemdin felst og ef við á, hvaða heilbrigðisstarfsmenn áttu í hlut. Þetta er nauðsynlegt svo hægt sé að taka erindið til meðferðar.

  • Málsmeðferð
    Athugasemdum vegna heilbrigðisþjónustu og framkomu heilbrigðisstarfsfólks er komið til stjórnenda starfseiningar sem sjá um úrvinnslu erindisins. Svarbréf er sent með öruggum hætti í gegnum Signet Transfer.
  • Fylgigögn 
    Ef fylgigögn og skönnuð skjöl eru send með athugasemd um þjónustu þurfa þau að vera með fullnægjandi upplausn og sýna allar upplýsingar sem koma fram á frumgagni.
  • Fyrning athugasemdar
    Athugasemd vegna heilbrigðisþjónustu eða framkomu heilbrigðisstarfsfólks skal leggja fram án ástæðulausra tafa. Séu meira en fjögur ár liðin frá málsatvikum, áskilur Landspítali sér rétt til að vísa erindinu frá nema sérstakar ástæður mæli með að það sé tekið til meðferðar.
  • Umboð
    Sé sá er sendir inn athugasemdina annar en sá er efni athugasemdarinnar fjallar um þarf undirritað umboð að fylgja. Án umboðs er ekki hægt að svara athugasemdinni.
    Forsjáraðilar geta sent inn athugasemd fyrir hönd ólögráða barna sinna. Ungmenni 16-18 ára eru skv. lögum sjálfstæðir þjónustuþegar í heilbrigðiskerfinu. Því mun svar berast þeim einum, nema skriflegt umboð fylgi beiðninni. Eyðublað: Umboð vegna athugasemda og kvörtunar til Landspítala vegna þjónustu.
  • Athugasemd vegna látins einstaklings
    Aðstandendur látins sjúklings geta sent erindi með sama hætti

Talskona sjúklings

Hér er hægt að koma ábendingum, hrósi eða tillögu til Landspítala. Erindið berst til talskonu sjúklinga sem kemur því til hlutaðeigandi aðila. Talskona sjúklinga er fulltrúi sjúklinga og aðstandenda innan Landspítala. Hlutverk talskonu er meðal annars að miðla upplýsingum og veita ráðgjöf til handa sjúklingum Landspítala og aðstandendum þeirra um málefni sem varða réttindi sjúklinga, upplifun þeirra, ábendingar, hrós og öll önnur málefni sem sjúklingar og aðstandendur telja mikilvægt að fá upplýsingar um eða koma á framfæri við stofnunina.

Landspítali tekur hvorki við bótakröfum né kveður hann á um bótaskyldu. Slíkri kröfu skal beint til hlutaðeigandi ábyrgðaraðila svo sem Sjúkratrygginga Íslands, tryggingafélaga eða, þegar við á, til Embættis ríkislögmanns.
Erindum vegna beiðna um niðurfellingu sjúklingagjalda skal beint til Nefndar um niðurfellingu sjúklingagjalda, netfang: innheimta@landspitali.is
Erindum vegna eignatjóns skal beint til Matsnefndar eignatjóna, netfang: eignatjon@landspitali.is
Erindum vegna bílastæðagjalda skal beint til GreenParking https://greenparking.is/