Rebekkustúkan nr. 4 Sigríður hefur fært skurðdeild Landspítala tvö tæki til nota við skurðmeðferð brjóstakrabbameinssjúklinga. Tækin voru afhent 28. janúar 2010. Annars vegar er um að ræða höfuðljós og hins vegar röntgentæki sem notað verður til myndgreiningar brjóstasýna eftir fleygskurði.
Tækin koma að góðum notum og bæta skurðmeðferð brjóstakrabbameinssjúklinga Landspítala.