Fréttatilkynning stjórnenda á Landspítala - háskólasjúkrahúsi
sem dreift var á fundi með blaða- og fréttamönnum
þriðjudaginn 23. maí 2006.
"Villandi og ósanngjarn kjarasamanburður
formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Stjórnendur á Landspítala - háskólasjúkrahúsi gera alvarlegar athugasemdir við framgöngu Elsu Friðfinnsdóttur formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vegna fyrirhugaðrar ráðningar danskra hjúkrunarfræðinga til þess að mæta alvarlegum skorti á hjúkrunarfræðingum á sjúkrahúsinu í sumar. Tilgangurinn með ráðningu þeirra er fyrst og fremst að tryggja öryggi sjúklinga meðan á sumarleyfistíma stendur á LSH.
· Viðbrögð formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vekja undrun hjá stjórnendum á Landspítala - háskólassjúkrahúsi einkum í ljósi þess að Elsa þekkir vel til þess mönnunarvanda sem steðjar að sjúkrahúsinu. Þar er um að ræða villandi og ósanngjarnan kjarasamanburð. Elsa undirritaði ályktun 12. maí síðastliðinn þar sem hjúkrunarfræðingar ítreka mikilvægi mönnunar fyrir öryggi sjúklinga og gæði þjónustunnar. Einnig var bent á tengslin milli fjölda hjúkrunarfræðinga og afdrifa sjúklinga.
· Hjúkrunarstjórnendur hafa haft miklar áhyggjur af mönnun vegna sumarleyfa og orlofs hjúkrunarfræðinga. Síðustu mánuði hefur starfsfólkið skilað frábærri vinnu við erfiðar aðstæður þar sem að jafnaði vantar fólk. Tólf hundruð hjúkrunarfræðingar eiga rétt til sumarleyfa og hjúkrunarstjórnendur leggja kapp á að svo geti orðið.
· Vegna skorts á hjúkrunarfræðingum var með öllu nauðsynlegt að fara út fyrir landsteinana í leit að starfsfólki. Samningur við danska starfsmannaleigu er nú í drögum. Hann er hliðstæður þeim sem LSH hefur gert við íslensk hjúkrunarverktakafyrirtæki á undanförnum árum, þ.e. Liðsinni og Alhjúkrun. Um er að ræða skammtíma verktakaráðningu í 10 vikur til að mæta því tímabili sem sjúkrahúsið er í mestum vanda vegna sumarleyfa.
· Settur hefur verið fram samanburður þar sem sýnd eru kjör fastráðinna starfsmanna á LSH annars vegar og kaup á þjónustu frá erlendri starfsmannaleigu. Þetta er ekki samanburðarhæft með þeim hætti sem formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga gerir. Landspítalinn er ekki vinnuveitandi umræddra starfsmanna. Dönsku hjúkrunarfræðingarnir eru starfsmenn hins danska fyrirtækis og njóta launakjara í samræmi við samninga sem þeir hafa gert við danska fyrirtækið. Hið sama gildir varðandi viðskipti LSH við hinar íslenskar starfsmannaleigur. Hvað kostnað varðar er samningur við danska fyrirtækið sambærilegur. Hins vegar hefur danska fyrirtækið yfir að ráða sérhæfum hjúkrunarfræðingum sem íslensku fyrirtæki hafa ekki.
· Sumarlokanir í ár eru talsvert minni en undanfarin ár til þess að draga úr álagi á spítalanum í heild og tryggja nauðsynlega þjónustu. Auk þess er ljóst að þeim deildum verður ekki lokað þar sem sérhæfing er mikil, svo sem gjörgæsludeildum, lungnadeild, taugalækningadeild og krabbameinslækningadeildum svo eitthvað sé nefnt. Því var nauðsynlegt að fá til starfa hjúkrunarfræðinga sem ekki eru til staðar hérlendis."