Landspítala - háskólasjúkrahúsi
föstudaginn 12. janúar 2007.
"Læknaráð Landspítala - háskólasjúkrahúss ítrekar fyrri ályktanir sínar um alvarlegan húsnæðisvanda sjúkrahússins, sem ekki getur beðið óleystur þar til nýtt sjúkrahús hefur verið reist. Húsnæðisvandinn leiðir til vaxandi óhagkvæmni í rekstri, kemur í veg fyrir eðlilega og nauðsynlega þróun þjónustunnar næstu árin og kemur niður á sjúklingum og starfsmönnum.
Nauðsynlegt er að yfirvöld fjármála og heilbrigðismála bregðist við þessum vanda með afgerandi hætti í samráði við stjórn og starfsfólk LSH.
Fram hefur komið að húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg, sem nú er til sölu eða leigu, gæti leyst þennan vanda að hluta. Skorað er á heilbrigðisráðuneytið að láta þegar í stað fara fram athugun á því hvort létta megi á húsnæðisvandanum með því að tiltekin starfsemi á vegum LSH fái þar inni."