Ályktað um uppsagnir hjúkrunarfræðinga á svæfinga-, gjörgæslu- og skurðstofusviði11.03.2008HjúkrunarráðHjúkrunarráðForsíðufréttirForsíðufréttir Prentað af vef Landspítala - háskólasjúkrahúss Ályktun hjúkrunarráðs Landspítala 11. mars 2008 "Stjórn hjúkrunarráðs Landspítala hefur haft til umfjöllunar uppsagnir nær allra hjúkrunarfræðinga innan svæfinga-, gjörgæslu- og skurðstofusviðs í framhaldi af uppsögnum sviðsstjóra á núverandi vaktalínum þann 31. janúar síðastliðinn. Á fundi sínum þann 11. mars var eftirfarandi ályktun samþykkt: Hjúkrunarráð lýsir hér með yfir áhyggjum sínum af þeim afleiðingum sem uppsagnirnar munu hafa á öryggi sjúklinga, starfsöryggi hjúkrunarfræðinga svo og sérfræðiþekkingu innan skurð- og svæfingahjúkrunar. Ljóst er að ef uppsagnirnar koma til framkvæmda mun neyðarástand skapast þegar skurðstofustarfsemi lamast. Hjúkrunarráð skorar á yfirstjórnendur að bregðast við nú þegar."