Ályktun stjórnar fagdeildar krabbameinshjúkrunarfræðinga 27. október 2011:
Stjórn fagdeildar krabbameinshjúkrunarfræðinga lýsir yfir áhyggjum af því að gerðar séu svo miklar kröfur til niðurskurðar á Landspítala að stjórnendur sjái sig nauðbeygða til að fækka legurýmum fyrir sjúklinga sem þurfa á líknarmeðferð að halda. Hætt er við að sjúklingarnir sem um ræðir þurfi eftir sem áður á þjónustu Landspítala að halda og muni þá liggja á öðrum deildum spítalans þar sem ekki er hægt að bjóða upp á sérhæfða líknarmeðferð í sama mæli. Það mun auka álag á deildirnar og draga úr möguleikum þeirra til að sinna öðrum sjúklingum sem þurfa á þjónustu spítalans að halda. Fagdeildin skorar á stjórnvöld að endurskoða fjárveitingar til Landspítala svo honum sé gert kleift að sinna þeim sjúklingum sem þurfa á þjónustu hans að halda og aðstandendum þeirra.