Inga Þórsdóttir, forstöðumaður næringarstofu á Landspítala og prófessor við matvæla- og næringarfræðideild HÍ, fékk heiðursverðlaun úr Verðlaunasjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright fyrir framúrskarandi árangur í rannsóknum á sviði næringarfræði. Verðlaunin voru afhent 27. desember 2010.
Verðlaunasjóðinn stofnaði Ása á hálfrar aldar afmæli Vísindafélagsins 1. desember 1968 til minningar um eiginmann sinn, ættingja og aðra venslamenn.