Blóðbankinn hvetur blóðgjafa til að koma við í bankanum sínum áður en þeir fara í frí .......... og gefa blóð.
Birgðir af blóði í O blóðflokkunum eru lægri en þurfa þykir og sérstaklega vantar O Rhesus negativt blóð,
en slíkt blóð þarf ætíð að vera til taks í bráðatilvikum og slysum.
O Rhesus negatívt blóð er jafnframt mikið notað fyrir nýbura, ungabörn...........og fyrir sjúklinga af sama blóðflokki.
Sérstaklega eru virkir blóðgjafar beðnir um að koma í þessari viku.
Við hvetjum nýja blóðgjafa til að koma fremur á öðrum tímum, vegna mikils annríkis þessa viku.
Allar aðrar vikur eru nýir blóðgjafar velkomnir að skrá sig sem blóðgjafa.
Blóðbankabíllinn er ekki á ferðinni fyrr en í lok ágúst.
Líkt og undanfarin ár er hann ekki í ferðum yfir sumartímann vegna sparnaðaraðgerða.
Blóðbankinn er ábyrgur fyrir allri söfnun og vinnslu blóðs hér á landi.
Á Íslandi eru 10.000 virkir blóðgjafar.
Árlega er safnað rúmlega 15.000 einingum heilblóðs.
Við viljum minna á nauðsyn þess að eiga nægar blóðbirgðir í banka allra landsmanna.
Starfsfólk Blóðbankans beinir þeim tilmælum til blóðgjafa að þeir komi í Blóðbankann á næstu dögum
og tryggi öryggi sjúklinga um land allt með því að tryggja nægar blóðbirgðir.
Núna í aðdraganda Verslunarmannahelgar er sérlega mikilvægt að eiga nægilegar blóðbirgðir,
og því mun Blóðbankinn á Snorrabraut lengja afgreiðslutíma sinn,
sem verður eftirfarandi þessa viku:
mánudagur 26. júlí 11-19
þriðjudagur 27. júlí 08-17
miðvikudagur 28. júlí 08-17
fimmtudagur 29. júlí 08-19
föstudagur 30. júlí 08-12
síminn í afgreiðslu blóðgjafa er 543 5500
Blóðbankinn er ennfremur með starfsstöð á Akureyri
þar er opið:
mánudag-fimmtudag 08:15-14:00
með góðum kveðjum
starfsfólk Blóðbankans
BLÓÐBANKINN........banki allra landsmanna.
Í þágu okkar allra.
Sjá ennfremur:
www.blodbankinn.is