Í dag 19. nóvember 2004 sendi fjármálaráðherra fyrstu rafrænu pöntunina úr nýju fjárhagskerfi ríkisins frá Landspítala - háskólasjúkrahúsi til Lyfjadreifingar ehf. Pöntunin fór í gegnum Rafrænt markaðstorg sem rekið er af ANZA hf. í samstarfi við Ríkiskaup og samkvæmt samningi við fjármálaráðuneytið.
Sjá nánar í fréttatilkynningu sem er hér viðhengd.