Actavis gaf hjartalækningadeild Landspítala tvær sprautudælur og hjartsláttarupptökutæki og var jólagjöfin afhent 22. desember 2009.
Actavis hefur fært hjartadeild Landspítala að gjöf tvær sprautudælur frá B.Braun og tvö King of Hearts hjartsláttarupptökutæki. Fulltrúar fyrirtækisins komu með fjóra harða pakka 22. desember 2009 og afhentu starfsfólkinu jólagjöfina.
Andvirði gjafarinnar nemur um einni milljón króna. Það fer ekki mikið fyrir tækjunum en þau standa þó fyrir sínu og eiga eftir koma sjúklingum og starfsfólki að góðum notum.
Skylt efni:
Vefur Actavis