Niels Chr. Nielsen aðstoðarmaður framkvæmdastjóra lækninga er formaður starfshóps sem skipaður hefur verið til að fylgjast með framvindu þeirra ákvarðana sem samþykktar hafa verið varðandi sparnað og aðhaldsaðgerðir á Landspítala - háskólasjúkrahúsi 2004. Aðrir í hópnum eru Lilja Stefánsdóttir, aðstoðarmaður framkvæmdastjóra hjúkrunar, Rúnar Bjarni Jóhannsson endurskoðandi, deild gæðamála og innri endurskoðunar, og Herdís Herbertsdóttir deildarstjóri frávikagreiningar og rekstrareftirlits, skrifstofu fjárreiðna og upplýsinga (SFU).
Starfshópurinn vinnur eftir verklýsingu frá forstjóra LSH. Hann á að skila lokaskýrslu í október 2004.