Landspítali var færður á virkjunarstig viðbragðsáætlunar spítalans klukkan 10:00 í morgun, fimmtudaginn 29. október, samkvæmt ákvörðun forstjóra LSH. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt gerist en virkjunarstig er næstefst af fjórum viðbragðsstigum viðbragðsáætlunarinnar og merkt með gulum lit í henni. Gripið var til þessara aðgerða sökum álags tengdu A(H1N1) inflúensufaraldrinum á gjörgæsludeildir LSH. Vikið er í nokkru frá skipulagi virkjunarstigsins, eins og það kemur fram í viðbragðsáætlunni, til þess að til mæta raunverulegum aðstæðum í starfseminni.
Stjórnun aðgerða er á höndum viðbragðsstjórnar sem skipuð er forstjóra, framkvæmdastjórum lækninga og hjúkrunar, framkvæmdastjóra eignasviðs, framkvæmdastjóra bráðasviðs og farsóttarnefnd. Formaður farsóttarnefndar er Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar.
Viðbragðsstjórnin kom saman til fundar í hádeginu í dag til þess að meta stöðuna og ákveða næstu aðgerðir. Eftirfarandi var meðal þess sem fram kom eða var ákveðið:
Klínískar deildir
- Ekki er ástæða til að rýma eða breyta deildum vegna faraldursins.
- Allar deildir taka inflúensusjúklinga.
- Yfirmenn hafa heimild til að færa starfsmenn milli deilda tímabundið, ef aðstæður krefjast.
- Valkvæð starfsemi verður takmörkuð eftir því sem við á.
Bráðamóttökur
- Starfsemi bráðamóttaka verður með óbreyttum hætti.
- Greiningarsveit verður ekki virkjuð að svo stöddu.
- Áfallamiðstöð verður ekki virkjuð.
Bjargir
- Hjúkrunarvörur – almenn birgðastaða er góð.
- Lyfjabirgðir eru nægjanlegar.
- Tækjabúnaður – bætt hefur verið við tækjakost spítalans.
Á hádegi í dag voru 35 inniliggjandi á Landspítala vegna inflúensu A(H1N1), þar af 8 á gjörgæslu. Auk þess hefur verið mikið um önnur alvarleg veikindi og slys sem hafa krafist innlagnar á gjörgæsludeild síðustu daga.
ATH!! Heimsóknir áfram takmarkaðar
Farsóttarnefnd Landspítala ítrekar tilmæli sín til almennings að takmarka heimsóknir sínar til sjúklinga á sjúkrahúsinu meðan á inflúensufaraldrinum stendur. Einungis þeir sem eiga brýnt erindi mega koma inn á spítalann, aðrir eru hvattir til að nota símann og tala við sjúklingana sjálfa eða starfsfólk viðkomandi deildar.
Um viðbragðsáætlun Landspítala
(Viðbragðsáætlun LSH er í „Beint að efninu“ til hægri á forsíðu upplýsingavefsins)
Viðbragðsáætlun Landspítala nær til eitrana, farsótta, geislavár, hópslysa og rýmingar og skiptist í fjögur viðbragðsstig:
- Á undirbúningsstigi er m.a. sinnt fræðslu og æfingum.
- Á viðbúnaðarstigi eru fáir kallaðir til en treyst á það starfsfólk og þekkingu sem er til staðar á vaktinni hverju sinni (Grænn litur).
- Á virkjunarstigi verður útkallið stærra en samt um mikinn sveigjanleika að ræða (Gulur litur).
- Á neyðarstigi er umfangið svo mikið að nauðsynlegt er að virkja að fullu Landspítala (Rauður litur).