Sjónvarp og DVD að gjöf til gjörgæsludeildarinnar í Fossvogi frá foreldrum Sturlu Þórs Friðrikssonar sem lést eftir flugslys í Skerjafirði árið 2000. Kristín Dýrförð og Friðrik Þór Guðmundsson ásamt Kristínu Gunnarsdóttur deildarstjóra og Kristni Sigvaldasyni yfirlækni.
Kristín Dýrfjörð og Friðrik Þór Guðmundsson, foreldrar Sturlu Þórs Friðrikssonar sem lést eftir flugslys í Skerjafirði árið 2000, hafa fært gjörgæsludeildinni í Fossvogi að gjöf sjónvarp, DVD tæki og nokkra mynddiska til minningar um hann.
"Við lok verslunarmannahelgar fyrir 11 árum urðu nokkur alvarleg slys þar sem fjöldi ungs fólks á leið heim af útihátíðum slasaðist og sumt af því lét lífið. Eitt þessara ungmenna var sonur okkar, Sturla Þór Friðriksson, sem var á leið heim með vini sínum, Jóni Berki Jónssyni, í flugi frá Vestmannaeyjum. Vikur og mánuði eftir slysið áttum við samastað á gjörgæsludeildinni í Fossvogi en samanlagt var Sturla þar í rúma þrjá mánuði. Við kynntumst því frábæra starfi og starfsfólki sem þar er. Fagmennsku þess og alúð við bæði sjúklinga og aðstandendur. Sturla Þór lést á gjörgæslunni þann 1. janúar 2001.
Eftir allan þann tíma sem við vorum aðstandendur á gjörgæslunni vitum við að sjúkrahúsið sér um að þar starfi fagfólk sem er fremst í sínum fræðum og að þar sé góður tækjakostur. Við vitum líka að þegar valið stendur á milli nýs tækis fyrir sjúkling eða þess að búa að aðstandendum hlýtur lækningabúnaðurinn að verða oftar fyrir valinu. Eftir fremsta megni er þó reynt að hafa aðstæður aðstandenda sem bestar. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingar hafa til dæmis með sér félagsskapinn VON sem hefur það markmið að búa vel að aðstandendum gjörgæsludeildarinnar, eins og aðstandendaherbergið ber fagurt vitni um.
Eitt af því sem slys og ótímabærir dauðdagar kenna okkur er að fagna hverjum áfanga, nýta tækifærið til að færa vini og ættingja sama. Skapa minningar. Í lok júní varð ég (Kristín) fimmtug og hélt upp á það. Í stað afmælisgjafa bað ég gesti um að leggja í söfnunarbauk. Í samráði við deildarstjóra gjörgæslunnar, Kristínu Gunnarsdóttur, ákváðum við að nota peningana til að kaupa sjónvarp og DVD spilara í einangrunarherbergið á gjörgæslunni. Herbergi sem við þekkjum vel, við dvöldum þar í margar vikur og í því lést Sturla okkar.
Við vitum að það reynir á að sitja svo dögum og vikum skipti yfir veiku fólki og þá getur verið gott að horfa á aðra skjái en þá sem tilheyra tækjakosti hátæknisjúkrahúss. Það er ósköp lítið sem við sem einstaklingar getum gert en þetta getum við og með því heiðrum við minningu sonar, bróður, barnabarns, frænda og vinar."
Kristín Dýrfjörð
lektor við Háskólann á Akureyri
dyr@unak.is