Fjöldi starfsfólks Landspítala mætti strax í byrjun þegar bólusetning gegn inflúensu A(H1N1) inflúensunni hófst á Landspítala kl. 16:00 fimmtudaginn 15. október 2009. Stefnt er að því að ljúka við að bólusetja starfsmenn spítalans á fjórum dögum. Bólusett er við Hringbraut og í Fossvogi. Þetta eru fyrstu skammtarnir af bóluefninu gegn A(H1N1) inflúensunni sem berast til landsins og ákváðu heilbrigðisyfirvöld að byrja á því að bólusetja heilbrigðisstarfsmenn.