Inflúensa A (H1N1)
Tilkynning frá farsóttarnefnd Landspítala, 8. desember 2009, kl. 15:00.
Einn sjúklingur hefur verið lagður á legudeild LSH síðastliðna viku með grun um inflúensu en tveir eru enn inniliggjandi frá því síðast var tilkynnt. Það eru því 3 einstaklingar á spítalanum, einn á gjörgæsludeild en tveir á legudeildum.
Farsóttanefnd telur ekki lengur þörf á áframhaldandi skráningu nýrra tilfella svínainflúensu að svo stöddu þar sem faraldur virðist á hröðu undanhaldi í samfélaginu, sbr. vef sóttvarnalæknis.