"High Adventure" er yfirskrift fyrirlestur sem ævintýrakonan Renata Chlumska heldur á vegum Félags íslenskra fjallalækna (FÍFL) og 66°NORÐUR í Háskólabíói miðvikudaginn 11. apríl 2012, kl. 20:00. Á undan fyrirlestri Renötu segja FÍFLin Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson stuttlega frá nokkrum háfjallaperlum Íslands, m.a. göngu á Miðfellstind, Snækoll og Kverkfjöll. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. Renata Chlumska er 39 ára þriggja barna móðir sem hefur verið útnefnd af Outdore Magazine sem ein af fremstu ævintýrakonum heims. Hún var fyrst sænskra kvenna að ná tindi Everestfjalls og hefur lagt að baki fjölda annarra tinda, m.a. Shishapangma (8.006 m) án viðbótarsúrefnis. Afrek hennar eru ekki bundin við fjallgöngur heldur ná einnig til hjólreiða og siglinga, til dæmis hjólaði hún frá Nepal til Stokkhólms á 4 mánuðum. Árið 2005 hjólaði hún og reri á kajak yfir 48 ríki Bandaríkjanna en ferðin tók næstum eitt og hálft ár og voru þá 18.500 km að baki. Næsta haust verður hún fyrsta sænska konan til að ferðast út í geiminn. Vefur Renötu Chlumska |