Halldóra Hálfdánardóttir hjúkrunarfræðingur hefur tímabundið tekið við starfi hjúkrunardeildarstjóra á krabbameinslækningadeild 11E frá 1. janúar 2012. Ráðið verður í starfið eftir að staðan hefur verður auglýst.
Halldóra lauk BS námi í hjúkrunarfræði frá HÍ árið 2000, diplómanámi í krabbameinshjúkrun frá HÍ árið 2006 og meistaranámi í hjúkrunarstjórnun frá HÍ árið 2010. Hún hefur unnið á 11E frá árinu 2001 og verið aðstoðardeildarstjóri frá árinu 2004.
Steinunn Ingvarsdóttir hefur látið af störfum sem deildarstjóri að eigin ósk en mun starfa áfram við spítalann hjá miðstöð um skilvirk flæði.