Þing norrænna og baltneskra hjartalækna verður haldið í Reykjavík dagana 3. - 5 júní 2009. Þingið er haldið á vegum Hjartasjúkdómafélags íslenskra lækna og fer fram í Háskólabíó. Mjög fjölbreytt dagskrá er í boði jafnt fyrir lækna og hjúkrunarfræðinga. Gestafyrirlesarar eru margir, bæði frá Bandaríkjunum og Evrópu.
Dagskrá þingsins og nánari upplýsingar má nálgast á http://www.congress.is/nbcc2009/