Gefin hafa verið út tilmæli um verklag við greiningu og meðferð fótasára. Tilmælunum er ætlað að gera læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru starfsfólki
heilbrigðiskerfisins kleift að taka ákvarðanir, byggðar á gagnreyndri þekkingu, um aðferðir við greiningu og meðferð langvinnra fótasára og að vísa sjúklingum í réttan farveg til frekara mats og meðferðar.
Tilmælin um verklag við meðferð fótasára eru á vefsvæði klínískra leiðbeininga á Landspítala.