Jónas Magnússon sviðsstjóri lækninga á skurðlækningasviði hverfur frá
starfi í eins árs rannsóknarleyfi frá 1. júlí 2003. Staðgengill Jónasar
til 17. ágúst næstkomandi er Halldór Jónsson, jr., yfirlæknir
bæklunarskurðlækningadeildar. Aron Björnsson, heila- og taugaskurðlæknir
hefur verið valinn staðgengill Jónasar sem sviðsstjóri skurðlækningasviðs
til eins árs og tekur hann við starfi að afloknu sumarleyfi þann 18. ágúst
2003.