Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir er golfmeistari LSH 2010 en hún sigraði í punktakeppni á Meistaramóti LSH í golfi 2010 með 37 punktum. Sigurvegari í höggleik varð Árni Gunnarsson á 79 höggum. Í punktakeppni karla sigraði Þorbjörn Guðjónsson með 33 punktum.
Meistaramót LSH í golfi 2010 var haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 20. ágúst. Þátttaka var mjög góð og kepptu 54 í mótinu. Þrátt fyrir góða veðurspá gerði hávaðarok af norðri og setti það nokkurn svip á aðstæður og árangur keppenda. Actavis styrkti þetta síðasta golfmót starfsmanna Landspítala í sumar.