Starfsumhverfisdeild mannauðssviðs á Landspítala hefur fengið styrk frá starfsmenntaráði félagsmálaráðuneytisins að upphæð kr. 2.000.000 . Sótt var um vegna verkefnisins "Þróun á líkani til skráningar á raunfærni ófagmenntaðra starfsmanna Landspítala byggt á lærdómsviðmiðum og hæfniþrepum framhaldsskólans".
Samstarfsaðilar eru skrifstofa menntamála, mennta- og menningarmálaráðuneytinu, starfsmannaskrifstofa, fjármálaráðuneytisins og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.