Leitað er eftir þátttöku karla og kvenna sem ekki eru með þekktan kæfisvefn í samanburðarhóp vegna rannsóknar sem fer fram á lungnadeild Landspítala Fossvogi.
Slíkur samanburður er talinn nauðsynlegur til þess að unnt sé að bera saman við niðurstöður rannsókna hjá einstaklingum með kæfisvefn sem eru þátttakendur í viðamikilli fjölþjóða rannsókn á sambandi kæfisvefns og hjarta- og æðasjúkdóma.
Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Þórarinn Gíslason, yfirlæknir lungnadeildar Landspítala, s. 543 1000.
Hverjir geta tekið þátt?
- Karlar og konur á aldrinum 40-65 ára
- Konur verða að vera hættar á blæðingum og ekki á hormónalyfjum
- Einungis leitað eftir einstaklingum í yfirþyngd (líkamsþyngdarstuðull 30-40)
- Heilsufar þarf að hafa verið stöðugt síðastliðna 2 mánuði
- Fleiri þættir geta útilokað þátttöku í rannsókninni en spurt verður um slíkt ef viðkomandi hefur samband vegna áhuga á þátttöku
Hvað felur rannsóknin í sér?
Þátttaka felur í sér læknisviðtal og skoðun við upphaf og lok rannsóknar og 6 heimsóknir. Rannsóknin tekur um það bil 2 vikur. Þátttakendur fara í svefnrannsókn. Þeir svara spurningalistum um heilsufar og svefn. Dagsyfja, athygli og einbeiting verða metin. Sálfræðingur kannar andlega líðan. Tekið er blóð og þvagsýni. Gerð verður 24 klst. blóðþrýstingsmæling, mældur miðlægur blóðþrýstingur og hálsslagæðar ómaðar. Þá er gerð segulómskoðun af hjarta og kvið. Lungnastarfsemi er könnuð með blástursprófi. Rannsóknir eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Frekari upplýsingar
Áhugasamir um þátttöku hafi samband við starfsmann rannsóknarinnar (Lovísu), s. 543 6383 eða 824 0265 milli kl. 13:00 og 14:00 þriðjudaga til fimmtudaga eða í tölvupósti á netfangið lovisag@landspitali.is.
Fólk sem býður sig fram hefur með því á engan hátt skuldbundið sig til að taka þátt í rannsókninni. Ákveði það að taka þátt er hægt að draga sig út úr rannsókninni hvenær sem er án þess að gefa sérstaka ástæðu fyrir því.
Rannsóknin hefur fengið leyfi Vísindasiðanefndar og Persónuverndar.