Frá sýkingavarnadeild Landspítala:
Vegna útbreiddra Nóróveirusýkinga í samfélaginu og mikilli hættu á að Nóróveirur sýki viðkvæma sjúklinga vill Landspítali koma því á framfæri að aðstandendur og aðrir gestir komi ekki í heimsókn ef þeir eru með (eða hafa á síðastliðnum 2 sólarhringum verið með) uppköst, niðurgang, ógleði, kviðverki eða öndunarfærasýkingar.