Kristjana G. Guðbergsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á blóðlækningadeild 11G frá 1. maí 2012.
Kristjana lauk BS námi í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2004 og diplómanámi í sálgæslu frá Háskóla Íslands árið 2010. Hún hefur unnið á blóðlækningadeild 11G frá árinu 2006, verið aðstoðardeildarstjóri frá árinu 2008 og leysti fráfarandi deildarstjóra af frá árinu 2010.