Kristján Þór Valdimarsson hefur tekið tímabundið við starfi deildarstjóra innkaupadeildar fjármálasviðs á Landspítala. Ráðið verður í starfið eftir að það hefur verið auglýst. Fjármálaráðherra skipaði Halldór Ó. Sigurðsson, deildarstjóra innkaupadeildar, í embætti forstjóra Ríkiskaupa frá áramótum. Halldór hefur gegnt starfi yfirmanns innkaupa og vörustjórnar á spítalanum í tvö og hálft ár. Hann hættir störfum á Landspítala seinni hluta janúarmánaðar.
Leit
Loka