Kristinn Sigvaldason yfirlæknir gjörgæsludeildar í Fossvogi |
Kristinn Sigvaldason læknir hefur verið ráðinn til að gegna starfi yfirlæknis gjörgæsludeildar við svæfinga-, gjörgæslu- og skurðstofusvið LSH í Fossvogi frá og með 1. september 2002. Ráðningin er á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefndum landlæknisembættisins og læknaráðs LSH, viðtals og að fenginni umsögn stjórnarnefndar LSH. Yfirlæknir gjörgæsludeildar LSH í Fossvogi starfar samkvæmt starfslýsingu.