Ágætu samstarfsmenn!
Ársfjórðungsuppgjör spítalans liggur nú fyrir. Mikill árangur hefur náðst í rekstri og er spítalinn nú rekinn innan fjárlaga. Þessi árangur hefur náðst þrátt fyrir mikinn niðurskurð á fjárframlögum eins og ég hef áður talað um. Allir starfsmenn spítalans hafa lagt sig ólýsanlega mikið fram til að ná þessum árangri og eiga miklar þakkir skildar. Ég man ekki eftir því að hafa séð viðlíka árangur hjá spítalanum áður.
Helstu rekstrartölur fyrsta ársfjórðungs 2010 miðað við 2009 eru:
Meðallegutími hefur minnkað um næstum 2 daga (22%), legum hefur fækkað um 6%, rannsóknum hefur fækkað um rúm 15% og skurðaðgerðum um rúm 3% en fæðingum fjölgað (4,7%). Dagdeildarkomum hefur fjölgað um 11% sem er eðlileg afleiðing þeirrar ákvörðunar okkar að fækka sólarhringsrúmum og færa starfsemina meira yfir á dagvinnutíma. Tæplega tvö prósent færri sjúklingar (kennitölur) leita til spítalans en árið 2009. Stöðugildi eru 5% færri. Þetta þýðir í raun að spítalinn hefur minnkað og þjónustan færst að hluta til yfir á annað rekstrarform.
Það er áfram mikið að gera á spítalanum sem ekki er nýtt fyrir starfsmenn LSH. Sérstaklega hefur verið annasamt undanfarna 6 daga vegna þess að meira en 30 fleiri bráðveikir sjúklingar hafa leitað til okkar daglega en venjulega er á þessum árstíma. Ástæða þessa er óljós en hefur valdið gífurlegu álagi á bráðamóttökuna okkar.
Við þurfum að viðhalda þessum góða árangri og sýna þolinmæði áfram en við þurfum líka snerpu til að bregðast fljótt við ef eitthvað breytist. Áfram er það forgangsatriði að tryggja öryggi sjúklinga á erfiðum tímum.
Mig langar svo að til að minna ykkur á ársfund spítalans sem verður haldinn í Salnum í Kópavogi miðvikudaginn 21. apríl og hefst kl. 14:00. Allir eru velkomnir. Þar verður meðal annars kynnt ný stefnumótun spítalans til ársins 2016.
Til hamingju með árangurinn, sem full ástæða er til að fagna!
Baráttukveðjur, Björn
bjornz@landspitali.is
FAGMENNSKA, ÖRYGGI, FRAMÞRÓUN, UMHYGGJA