Bílastæði næst aðalinngangi bráðamóttöku í Fossvogi verða gjaldskyld frá 2. nóvember 2010 og bætast þannig við þau stæði á Landspítala sem eru gjaldskyld nú þegar.
Markmið með þessum breytingum er að bæta aðgengi sjúklinga og aðstandenda að vel staðsettum skammtímastæðum.
Landspítali vill beina starfsfólki og gestum sem dvelja til lengri tíma að stæðum fjær inngöngum og nýlega gerðum stæðum að austanverðu á Landspítala Fossvogi. Með greiðari aðgangi sjúklinga að spítalanum eykst öryggi þeirra