Gleðilegt nýtt ár! Óskum sjúklingum og starfsmönnum á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, svo og landsmönnum öllum, gæfu og farsældar á nýju ári með þökk fyrir samstarfið á árinu sem kveður. Á fjórum árum frá sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík hafa starfsmenn LSH unnið þrekvirki með mótun nýs háskólasjúkrahúss sem stenst alþjóðasamanburð og getur tekist á við flóknustu verkefni í sjúkrahúsþjónustu. Sameiningin er farin að skila þjóðinni miklum árangri, starfsemi Landspítala - háskólasjúkrahúss efldist á þessu ári og sótt var fram með nýjungum sem eftir var tekið. Það er mikilvægt að áfram verði haldið á þeirri framfarabraut. Forstjóri og framkvæmdastjórn LSH |
Gleðilegt nýtt ár 2004
Áramótakveðja frá forstjóra og framkvæmdastjórn Landspítala - háskólasjúkrahúss.