Actavis hefur fært svæfingardeild Landspítala Hringbraut að gjöf speglunartæki (glidescope) fyrir fullorðna og börn. Um er að ræða speglunartæki tengt skjá sem notað er til að barkaþræða sjúklinga fyrir svæfingar. Tæki þetta er af nýjustu gerð og hentar bæði fyrir fullorðna og börn alveg niður í fyrirbura. Tækið hentar einnig við erfiðar barkarennuísetningar.
Með tilkomu þessa tækis batna kennslumöguleikar barkarennuísetningar sem mun gagnast læknanemum, hjúkrunarnemum og bráðatæknum í þeirra verklega námi á Landspítala.