Iðnaðarráðuneytið lánar ríkisstofnunum rafbíl sinn á vormánuðum 2012 og reið Landspítali á vaðið mánudaginn 7. maí. Björn Zoëga forstjóri greip í bílinn og segir á vef ráðuneytisins um þá viðleitni að taka skref í átt til vistvænni samgangna: "Við á Landspítala tökum glöð þátt í þeirri þróun enda fellur hún mjög vel að áherslum okkar í umhverfis- og samgöngumálum og þeirri sýn okkar að vera drifkraftur framþróunar."
Meira á vef iðnaðarráðuneytisins