Landspítali tekur þátt í "stefnumóti fyrirtækja og stofnana á heilbrigðissviði" sem verður í Háskólanum í Reykjavík föstudaginn 24. júní 2011. Yfirskrift stefnumótsins er "betri þjónusta fyrir minna fé með klasasamstarfi fyrirtækja og stofnana". Björn Zoëga, Björn Jónsson og Þórður Helgason á Landspítala eru meðal þeirra sem flytja erindi.
Landspítali, Rannís, Háskólinn í Reykjavík, Samtök iðnaðarins og Hátækni- og sprotavettvangur standa að stefnumótinu.