Páll Helgi Möller sérfræðingur verður yfirlæknir við almennu skurðdeildina á Landspítala Hringbraut í október og nóvember. Jónas Magnússon prófessor, sem þar hefur verið, er orðinn sviðsstjóri skurðlækningasviðs. Samkvæmt drögum að starfslýsingum er gert ráð fyrir því að sviðsstjórastarfið sé aðalstarf og öðrum störfum ekki gegnt á meðan. Jónas hefur tilkynnt lækningaforstjóra, að hann hyggist til að byrja með verja tíma sínum mest á Landspítala Fossvogi.
Páll Helgi yfirlæknir á almennri skurðdeild við Hringbraut
Páll Helgi Möller verður yfirlæknir við almennu skurðdeildina á Landspítala Hringbraut en Jónas Magnússon er orðinn sviðsstjóri skurðlækningasviðs.