Landspítali var eitt þriggja fyrirtækja í vali á besta þjónustufyrirtæki ársins 2011. Icelandair var útnefnt þjónustufyrirtæki ársins.
Tilkynnt var um valið á ráðstefnu sem Samtök atvinnulífsins og Samtök verslunar og þjónustu héldu á Grand hótel Reykjavík 25. mars 2011 um framúrskarandi þjónustu í tengslum við átakið „Spilum saman".
Valið á þjónustufyrirtæki ársins fór fram með þeim hætti að könnunarfyrirtækið Maskína valdi fólk af handhófi úr þjóðskrá og bað um að nefna fyrirtæki sem það teldi hafa skarað fram úr í þjónustu. Þrjú fyrirtæki voru valin úr 10 efstu fyrirtækjunum til nákvæmari skoðunar í úrslitum, Landspítali, Toyota og Icelandair. Icelandair var valið besta þjónustufyrirtæki ársins.