Eygló Ingadóttir hjúkrunarfræðingur á vísinda-, mennta- og gæðasviði var kjörin formaður hjúkrunarráðs Landspítala á aðalfundi þess fimmtudaginn 21. október 2010. Bylgja Kærnested lét þá af störfum en hún hefur gegnt formennskunni í tvö ár.
Þorgerður Hjaltadóttir hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri mannauðs- og gæðamála á lyflækningasviði verður áfram varaformaður.
Dröfn Ágústsdóttir hjúkrunarfræðingur á B6 var kjörin ritari í stað Sigríðar Zoëga.