Keppendur á vegum Starfsmannafélags Landspítala fengu fern gullverðlaun, ein silfurverðlaun og tvenn bronsverðlaun á Norrænu sjúkrahúsleikunum á Bispebjerg í Kaupmannahöfn sem haldnir voru 27. til 30. maí 2010. Íslendingarnir kepptu í handbolta, blaki, keilu, gólfi og hlaupum.
- Keila, liðakeppni kvenna, bronsverðlaun (Anna Soffía Guðmundsdóttir, Eleanor Elín Secong)
- Handbolti, gullverðlaun (strákarnir okkar, Handboltalið Landspítala)
- Hlaup kvenna, 3 km, gullverðlaun (Helga Guðrún Hallgrímsdóttir)
- Hlaup kvenna, 6 km, gullverðlaun (Helga Guðrún Hallgrímsdóttir)
- Hlaup karla, 6 km, gullverðlaun (Rudolf Rafn Adolfsson)
- Hlaup kvenna, 6 km, silfur í sínum aldursflokki (Sigrún Gunnarsdóttir)
- Hlaup kvenna, 6 km, brons í sínum aldursflokki (Arna Harðardóttir)