Örtröð var um tíma á hjúkrunarbúðum sem voru haldnar í K-byggingunni á Landspítala Hringbraut fimmtudaginn 12. maí 2011 í viku hjúkrunar á spítalanum. Þar sýndu hjúkrunarfræðingar, ljósmæður og sjúkraliðar á spítalanum nýjungar og nauðsynjar í hjúkrun. Markmið með búðunum var að kynna faglegt starf á spítalanum, gera sérfræðiþekkingu í hjúkrun sýnilega, hittast og eiga saman faglegt spjall.