Hjartagátt á Landspítala Hringbraut barst nýverið kærkomin gjöf sem prýðir nú einn vegginn þar. Þetta er stórt málverk sem Óli G. Jóhannsson, myndlistarmaður á Akureyri gaf starfseminni þar. Verkið heitir "Þú hlýtur að skilja" og var málað árið 2007. Óli G. er einn af fjölmörgum sem hefur fengið kransæðastíflu og þurft á þjónustu Landspítala að halda eða þessa "batterís", eins og hann orðaði það sjálfur . "Batteríð" kom honum aftur út í lífið og málaralistina, fyrir það er hann þakklátur og starfsfólkið á Hjartagátt að sama skapi fyrir að hafa orðið að liði og fyrir málverkið á veggnum.
Leit
Loka