Deildarstjóri launadeildar frá 1. febrúar01.02.2008StarfsmannamálForsíðufréttirForsíðufréttirMannauðsdeild Prentað af vef Landspítala - háskólasjúkrahúss Deildarstjóri launadeildar frá 1. febrúar Dagrún Hálfdánardóttir hefur tekið við starfi deildarstjóra launadeildar á skrifstofu mannauðsmála frá 1. febrúar 2008. Hún gegndi áður starfi lögfræðings á kjaradeild skrifstofu starfsmannamála. Árið 2005 lauk Dagrún embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands og hlaut héraðsdómslögmannsréttindi árið 2006. Áður en Dagrún hóf störf sem lögfræðingur á Landspítala vann hún á lögmannsstofu og hjá Lagastofnun Háskóla Íslands. Jafnframt er Dagrún hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands og lauk M.A. prófi í siðfræði heilbrigðisþjónustu frá University of Manchester árið 1998.