Karl Andersen formaður vísindaráðs setti hátíðina, Alma Möller heilbrigðisráðherra og Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala héldu erindi.
Martin Ingi Sigurðsson, prófessor og yfirlæknir í svæfinga- og gjörgæslulækningum, hlaut sjö milljóna króna verðlaun úr Verðlaunasjóði í læknisfræði og skyldum greinum.
Þá veitti vísindasjóður Gísla Einarssonar, fyrrverandi yfirlæknis og framkvæmdastjóra kennslu, vísinda og þróunar á Landspítala, og Sigurlaugar Sveinbjörnsdóttur taugalæknis, slagteymi Landspítala níu milljóna króna styrk.
Hægt er að nálgast allar upplýsingar um viðburðinn á vef hátíðarinnar.
Á safnsíðu um Vísindi á vordögum í áranna rás og á vefsíðunni Vísindastarf má svo sjá fróðleik um störf vísindafólks síðustu rúma tvo áratugi.
Þorkell Þorkelssson var á viðburðinum og smellti af meðfylgjandi myndum.