Samkvæmt samningnum geta sérnámslæknar sinnt allt að fjögurra mánaða starfsnámi á Eir, annaðhvort á öldrunarendurhæfingardeild eða á heimilisdeildum.
Á Eir er rekin 44 rúma endurhæfingardeild í samstarfi við Landspítalann, þar sem tekið er við sjúklingum eftir bráðainnlögn á Landspítalann eða samkvæmt tilvísun frá göngudeild öldrunarlækninga og eftir valkvæðar liðskiptaaðgerðir. Árlega eru um 350 innlagnir á deildina.
Framhald í uppbyggingu sérgreinarinnar
Þetta samstarf stuðlar að áframhaldandi þróun öldrunarlækninga á Íslandi með því að veita læknunum víðtækari reynslu af heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða utan spítala. Markmiðið er að dýpka skilning lækna á heildstæðri umönnun aldraðra og tryggja betri samfellu milli mismunandi þjónustustiga.
Fjölgun sérfræðinga í öldrunarlækningum er mikilvæg fyrir íslenskt samfélag þar sem þörfin fyrir slíka þjónustu eykst stöðugt. Vel þjálfaðir sérfræðingar geta komið í veg fyrir óþarfa spítalainnlagnir og stuðlað að betri lífsgæðum aldraðra á meðan þeir búa í sínu eigin umhverfi.
Samningurinn var undirritaður af Tómasi Þór Ágústssyni fyrir hönd Landspítala og Ólafi Helga Samúelssyni fyrir hönd Eirar og bætist við áframhaldandi samstarf Landspítala við SAk á sviði sérnáms í öldrunarlækningum.