Samhliða útskriftinni var haldið málþing í tilefni af því að læknarnir hafa lokið fullu sérnámi og útskrifast sem sérfræðingar. Þar komu kennslustjórar saman ásamt stjórnendum og áhugafólki um sérnám á Íslandi og ræddu um námið út frá sögulegu samhengi og hvert við stefnum.
Málþinginu var stýrt af Jóhönnu Dröfn Stefánsdóttur, umsjónarsérnámslækni í geðlækningum við Landspítala.
Útskrifaðir og viðstaddir voru:
- Eva Hrund Hlynsdóttir, sérfræðingur í bráðalækningum
- Gunnar Baldvin Björgvinsson, sérfræðingur í almennum lyflækningum
- Hjálmar Ragnar Agnarsson, sérfræðingur í almennum lyflækningum
- Oddný Ómarsdóttir, sérfræðingur í geðlækningum
- Ragnar Logi Magnason, sérfræðingur í öldrunarlækningum
- Steinn Thoroddsen Halldórsson, sérfræðingur í geðlækningum
- Þórir Bergsson, sérfræðingur í bráðalækningum
Útskrifaðir en ekki viðstaddir:
- Alexander Illarionov, sérfræðingur í almennum lyflækningum
- Hlynur Indriðason, sérfræðingur í almennum lyflækningum
Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari Landspítala, var viðstaddur og smellti af nokkrum myndum.